|
|
29.01.2007 23:05:10 / Atli
Góóóóða kvöldið!!! Hver bjóst við þessu?? Hehe ekki ég allavega
En við verðum að fara hratt yfir sögu þar sem ég gæti átt það á
hættu að sofna yfir tölvunni ef ég sit svona mikið lengur hehe.
Verst að maður er bara búinn að gleyma öllu merkilegu sem maður
hefði getað sagt, en höfum þetta bara einfalt og þægilegt:
Punktaform!!
- Það klikkaði ekkert í Desember, nema ef vera skyldi snjórinn.
13.desember gerðust þó mikil tíðindi þegar systir mín eignaðist
stelpu og það ekkert smá flotta, hún verður bara fallegri með
hverjum degi sem líður
Svo komu jólin... þau liðu hjá eins
og venjulega með legusárum og áti og áramótin voru sæmileg, ekkert
úber góð en það slapp alveg.
- Ég er kominn í nýtt starf hjá BYKO, sumir myndu kalla það stökk
upp á við, aðrir niður á við...ég veit ekki hvort er hehe
- Ég skellti mér suður um helgina í skírn hjá frænkunni og fékk
hún nafnið Ásta Rósey, allir mjög sáttir með það. Annars var ekkert
annað merkilegt gert í borginni nema þjóta út og suður á pínulitlum
fjólubláum Renault Megane, ekki slæmt það!!!
- Jaaaaaáá ekkert meira að segja um það held ég bara!! Annars
skellti ég mér í blak áðan sem verður að teljast stórfrétt að því
leyti að ég vaknaði kl.5:50 í morgun takk fyrir.. ég held að það sé
met hjá mér, en fyrir þá sem langar að vita hvernig það er að þá
get ég sagt ykkur að það er ógeðslegt. En nóg um það, ég fór
auðvitað á kostum í blakinu og sé eftir því meir og meir á hverri
æfingu að hafa klúðrað tækifærinu á atvinnumennsku í blakinu...
en talandi um bolta, að þá er handboltinn að sjálfsögðu í
aðalhlutverki í dag og maður fékk bara fiðring í allan líkamann við
að munda boltann við punktalínuna í kvöld hehe Ég ætla ekki að
drepa ykkur úr leiðindum með væmnu bloggi um landsliðið og HM að
öðru leyti en að ég hef heyrt að almúginn í Danmörku sé kominn í
undanúrslitin og sé bara að spá hvort þeir fái Pólverja eða Rússa í
næsta leik. Svona hugsunarháttur er náttúrulega bara pirrandi og
vonandi náum við að þagga niður í þessum kaffiBaunum með sigri á
morgun. Það er nú eða aldrei, það er of seint að taka á í leiknum
um 5. eða 7.sætið!!! Ég veit ekki með ykkur en ég ætla allavega að
missa mig yfir sjónvarpinu á morgun, okkar leikmönnum, gólfinu,
dómurunum, áhorfendum, búningunum og bara öllu!!! ...
var þetta kannski aðeins of væmið? Jæja þá, ÁFRAM ÍSLAND!!!
»
01.12.2006 22:28:12 / Atli
Ohh ég kemst í svo mikið jólaskap
við að heyra þetta lag!! Ég er búinn að hugsa alla vikuna “Ég
get ekki beðið eftir föstudeginum því þá ætla ég að blasta Last
Christmas og Band-Aid í botn!!” því að þá kemst ég í jólaskap,
ekki fyrr og ekki seinna. Og hvaða dagur er þá betri til þess en
1.desember, maður spyr sig?? Mér hefur alltaf fundist Band-Aid
lagið frá 1985 algjör snilld og ekkert smá átakanlegt. Þess
vegna fór það dáldið fyrir brjóstið á mér þegar þetta lag var
“endurgert” (eyðilagt) fyrir nokkrum árum með rappi og
þvíumlíku. Það var samt eitt sem skemmti mér þegar þetta lag kom
út, en það var þegar menn voru að reyna að útvega sér þetta lag
ólöglega á netinu. Hversu sorglegur ertu orðinn þegar þú stelur
lagi sem er framleitt í þeim tilgangi að safna fé fyrir fátæka
sem vita ekki hvort þeir fái vatn þann daginn, mat þessa vikuna
eða lifi yfir höfuð mánuðinn af? (Sorry allir þeir sem gerðu
það )Last Christmas hefur hinsvegar alltaf verið uppáhalds
jólalagið mitt, en ég man sérstaklega eftir því hvað það var
gaman að horfa á myndbandið á Skjá einum, jólin sem stöðin kom á
Reyðarfjörð (á REYÐARFJÖRÐ suckers!!), það var bara eitthvað svo
jólalegt, vinir fara saman uppí fjöll til að halda jólin, fara
út í snjókast...
Ég vil bara taka það fram að ég er
ekki mikið jólabarn þó að þetta líti kannski þannig út hehe

En já, jólin eru að koma ef þið
vissuð það ekki. Það fer ekki framhjá manni þegar maður vinnur í
verslun, í dag snýst allt um að kaupa jólaseríur, ljósaskraut og
ljót gervitré (Húsasmiðjutré) sem hrynur alveg jafn
mikið af greinunum eins og á lifandi tré. Ég hugsa með hryllingi
til síðustu dagana fyrir jól þegar allt verður á haus í búðinni og
tölvukerfið hrynur (ég held að það hafi gerst fimm sinnum í dag),
en maður fær þó allavega jólastemninguna beint í æð, það er huggun
(Y).
Ég ætlaði að vera með rosalegar
pælingar í þessu bloggi, en einhverjum hluta vegna er ég alveg
tómur í augnablikinu. Mér dettur þó eitt í hug. Hafiði pælt í
mönnunum sem eru alltaf að reyna að finna upp eitthvað til að slá
algjörlega í gegn, leggja kannski aleiguna í eina litla hugmynd til
þess að reyna að verða frægir og ríkir viðskiptamenn? Mér datt
þetta í hug þegar ég sá hið mesta þarfaþing koma með vörusendingu í
BYKO um daginn, en það er eitthvað sem er nauðsynlegt á hvert
heimili. Hver kannast ekki við það að þurfa að skafa af bílnum
í hríðarbyl en vera að krókna úr kulda? Þá kemur nýja skafan til
hjálpar, en hún er með áföstum vettlingi þannig að maður getur
skafið af bílnum áhyggjulaus. Einfalt en
áhrifaríkt.
Mér datt nú bara eitt í hug, en ég
vil vekja athygli á því að þetta var mjög djúp pæling og tók langan
tíma ...hefur engum dottið í hug að nota vettling og halda á
sköfunni?
Ég kveð með desemberkveðjum.
Lifið heil.
»
01.12.2006 22:28:12 / Atli
Ohh ég kemst í svo mikið jólaskap við að heyra þetta lag!!
Ég er búinn að hugsa alla vikuna “Ég get ekki beðið eftir
föstudeginum því þá ætla ég að blasta Last Christmas og Band-Aid
í botn!!” því að þá kemst ég í jólaskap, ekki fyrr og ekki
seinna. Og hvaða dagur er þá betri til þess en 1.desember, maður
spyr sig?? Mér hefur alltaf fundist Band-Aid lagið frá 1985
algjör snilld og ekkert smá átakanlegt. Þess vegna fór það
dáldið fyrir brjóstið á mér þegar þetta lag var “endurgert”
(eyðilagt) fyrir nokkrum árum með rappi og þvíumlíku. Það var
samt eitt sem skemmti mér þegar þetta lag kom út, en það var
þegar menn voru að reyna að útvega sér þetta lag ólöglega á
netinu. Hversu sorglegur ertu orðinn þegar þú stelur lagi sem er
framleitt í þeim tilgangi að safna fé fyrir fátæka sem vita ekki
hvort þeir fái vatn þann daginn, mat þessa vikuna eða lifi yfir
höfuð mánuðinn af? (Sorry allir þeir sem gerðu það )Last
Christmas hefur hinsvegar alltaf verið uppáhalds jólalagið mitt,
en ég man sérstaklega eftir því hvað það var gaman að horfa á
myndbandið á Skjá einum, jólin sem stöðin kom á Reyðarfjörð (á
REYÐARFJÖRÐ suckers!!), það var bara eitthvað svo jólalegt,
vinir fara saman uppí fjöll til að halda jólin, fara út í
snjókast...
Ég vil bara taka það fram að ég er ekki mikið jólabarn þó að
þetta líti kannski þannig út hehe 
En já, jólin eru að koma ef þið vissuð það ekki. Það fer ekki
framhjá manni þegar maður vinnur í verslun, í dag snýst allt um að
kaupa jólaseríur, ljósaskraut og ljót gervitré (Húsasmiðjutré) sem
hrynur alveg jafn mikið af greinunum eins og á lifandi tré. Ég
hugsa með hryllingi til síðustu dagana fyrir jól þegar allt verður
á haus í búðinni og tölvukerfið hrynur (ég held að það hafi gerst
fimm sinnum í dag), en maður fær þó allavega jólastemninguna beint
í æð, það er huggun (Y).
Ég ætlaði að vera með rosalegar pælingar í þessu bloggi, en
einhverjum hluta vegna er ég alveg tómur í augnablikinu. Mér dettur
þó eitt í hug. Hafiði pælt í mönnunum sem eru alltaf að reyna að
finna upp eitthvað til að slá algjörlega í gegn, leggja kannski
aleiguna í eina litla hugmynd til þess að reyna að verða frægir og
ríkir viðskiptamenn? Mér datt þetta í hug þegar ég sá hið mesta
þarfaþing koma með vörusendingu í BYKO um daginn, en það er
eitthvað sem er nauðsynlegt á hvert heimili. Hver kannast ekki
við það að þurfa að skafa af bílnum í hríðarbyl en vera að krókna
úr kulda? Þá kemur nýja skafan til hjálpar, en hún er með áföstum
vettlingi þannig að maður getur skafið af bílnum áhyggjulaus.
Einfalt en áhrifaríkt.
Mér datt nú bara eitt í hug, en ég vil vekja
athygli á því að þetta var mjög djúp pæling og tók langan tíma
...hefur engum dottið í hug að nota vettling og halda á
sköfunni?
Ég kveð með desemberkveðjum.
Lifið heil.
»
12.11.2006 22:00:27 / Atli
Okei, núna er ég búinn að vera með
Word-skalið opið í örugglega tíu mínútur og sit hérna
kófsveittur við að reyna að byrja þetta blogg nógu
gáfulega...hvað ætti maður að gera? Maður gæti reynt að vera
eins svalur og Bert og félagar í denn tíð og hrópa “HÆ SKUTLUR
OG SKVÍSUR” eins hátt og maður getur. Eins gæti ég reynt að kafa
aðeins inn á við og finna uppruna minn með því að þruma “Takið
hinni postulegu kveðju!!”. Eins og ég segi, þá er þetta allt
undir mér sjálfum komið og kannski best að tala bara frá
hjartanu.
Síðan síðast (haha vá hvað er langt
síðan) hef ég nú brallað ýmislegt. Ég asnaðist til að skrá mig á
dómaranámskeið vegna mikillar pressu samverkamanna minna og hef ég
því setið og lesið knattspyrnulögin öll kvöld og brutt Rautt eðal
ginseng af mikilli áfergju til að halda einbeitingunni. Merkilegt
hvað maður verður hyper af öllu þessu ginsengi... prófið er um
næstu helgi og auðvitað býst maður ekki við öðru en að maður negli
það. Ég er líka með alla réttu taktana í það að verða
dómari!!

Humm já síðasta helgi var
þokkaleeeeg. Stefán surtur kíkti í heimsókn þar sem hann var á
undirbúningsæfingum undirbúningstímabilsins (snilldar orð) og að
sjálfsögðu tékkuðum við á lífinu í bænum. Það reyndist ekki vera
mjög fjölþjóðlegt (eingöngu Pólverjar) þannig að við
ákváðum klukkan korter
í tvö að skella okkur á ball á Eskifjörð. Vorum mættir gallvaskir í
miðasöluna um tvö og alveg tilbúnir í fjörið, en tekur hljómsveitin
þá ekki pásu!! Typical... En þetta var nú samt alveg hörkuball
þennan klukkutíma sem við vorum þarna og sá ég ekki eftir þessum
pening, tjah ef ekki skyldi hafa verið fyrir Stefán líka.. hehemm.
En atvik kvöldsins var án vafa bílferðin með leigubílstjóra nr.1 í
Fjarðabyggð en hann var kominn með DVD í bílinn hjá
sér..sweet!!
Þessi helgi má segja að hafi verið
hundleiðinleg þar sem ég hef þurft að hanga inni alla helgina af
því að ég er kominn með kvef, og það örugglega í 4.skipti í vetur!!
Ég hlýt að vera gangandi læknisfræðilegt undur þar sem ég held að
hinn venjulegi maður fái ekki kvef svona oft... maður getur samt
skemmt sér ágætlega yfir þessum raunum ef maður hefur
ímyndunaraflið (geðveikina?) í lagi, en andardrátturinn hjá
mér er á köflum ANSI skrautlegur og ég get ekki ímyndað mér annað
en að ég hljómi eins og Pegasus þegar ég sef...
Lítið annað í fréttum þessa dagana
heldur en prófkjör hingað og þangað. Arni Nonnsen er á leiðinni á
þing, flestum landsmönnum (að ég held) ekki til svo mikillar
ánægju. Það verður allavega gaman að horfa á Alþingi núna þegar
þetta breytist aftur í söngvastund þar sem DJ Nonnsen tryllir
lýðinn...Vertu til er vorið kallar á þig, vertu til að leggja hönd
á plóg!!
Planið er að fara suður um næstu
helgi...spurningin er hvort ég hafi eitthvað þangað að gera??
Cheers
P.S. ég vil að lokum lýsa yfir stríði
við Liverpool. Þeir höfðu 2.000 kall af mér í dag!!!
»
30.10.2006 23:13:25 / Atli
Titillinn segir allt sem segja þarf um mig í dag.
Sumir segja að það sé kominn vetur...ég segi að það sé
kjaftæði. Sumir vilja meina að kuldinn úti sé vetrinum um að
kenna...ég hlusta ekki á það. Hins vegar gengur mér illa að útskýra
það af hverju ég var næstum búinn að fljúga á hausinn fyrir utan
Fingurbjörgina (Fjarðabyggðarhöllina) í kvöld, ég hlýt að hafa
hrasað um skóreimarnar...
Þetta blogg í kvöld verður ekki ósvipað orðum kvöldsins á Rás
2 þar sem ég er orðinn freeekar þreyttur og tek þetta allt á rólegu
nótunum, enda engin ástæða til annars. En eitt af rökunum sem menn
nota fyrir því að veturinn sé kominn, eru þau að nú eru mýsnar
farnar að færa sig fullmikið upp á skaftið inní húsunum. Ég hélt að
einhver hefði fótbrotið sig í morgun í vinnunni, slík voru óhljóðin
og lætin sem ég heyrði en svo kom í ljós að viðkomandi hafði séð
mús. “Mús, gaman gaman!!” hugsaði ég og hljóp af stað en púff!!
Músin horfin. Það var eins og hún skynjaði það í allan dag að ég
ætlaði að fanga hana og henda henni út í kuldann (ekki drepa hana,
myndi aldrei detta það í hug!!) vegna þess að hún virtist alltaf
hverfa þegar ég ætlaði að ná henni. Ég var nú farinn að efast um
sannleiksgildi þessara sagna í lokin, ég fékk aldrei að sjá eða
heyra neitt um þennan músagang...
Farið varlega næstu daga, mýsnar leynast út um allt og stökkva
fram þegar þið eigið síst von á því. Hvað sem þig gerið samt, EKKI
drepa þær!!
Ætlaði að koma með aðra pælingu í lokin og er hún um dýr, eða
nánar tiltekið skordýr. Ég tók eftir því inná baði áðan að
loftljósið er alveg þakið dauðum flugum (það var líka alveg hætt að
sjást inná baði) og fór aðeins að pæla, veit ekki hvort einhver
hafi rannsakað þetta... ætli sjálfsmorðstíðni hjá flugum sé mikil?
Og ef svo er, ætli hún sé meiri á haustin en á öðrum tíma ársins?
Þessum flugum hlýtur að líða alveg rosalega illa þar sem þær lifa
ekki lengur en hvað, tvo þrjá daga, og hugsa þá kannski bara: Vá
núna er ég búinn að lifa í 4 klst, djöf. er lífið ömurlegt!! Best
að fara og steikja mig á þessu ljósi þarna.
Spurning um að fara og fá styrk frá Háskóla Íslands til að
rannsaka þetta...
»
26.10.2006 22:38:22 / Atli
Fóstbræður klárlega að gera sig
En ég er mættur á ný eftir langt og launað frí frá
bloggheiminum. EN, ég þó ég sé að bulla hérna eitthvað núna þýðir
það ekki að þetta verði reglulegt, ÓNEI!!
Við skulum fara hratt yfir sögu síðan síðast.
Ég fór á konukvöldið á Fáskrúðsfirði. Ekki það að ég hafi verið í
einhverjum óvenjulegum aðgerðum undanfarið, heldur var ég að
þjóna...já þið heyrðuð rétt!! Hverjum hefði dottið það í hug að ég
myndi enda sem framreiðslumaður á einhverju dekurkvöldi hjá
kvenþjóðinni?? Neinei, hverjum hefði bara dottið það í hug að ég
yrði þjónn yfir höfuð einhvern tímann?? En þetta var bara ágætt,
tók dáldið á en ég væri alveg til í að prófa þetta aftur. Það var
góður stemmari á þessu en ég held að þessi mynd lýsi best
stemningunni á staðnum:
http://www.123.is/faskrudsfjordur/albums/759917655/Jpg/027.jpg
Haha þvílík dramatík í gangi!!
Humm hvað var aftur næst á dagskrá... já vörutalning í BYKO um
síðustu helgi, vúhú!! Það þýddi að sjálfsögðu að maður mátti ekkert
gera af sér um helgina heldur þurfti maður einfaldlega að sofna
fyrir framan sjónvarpið FYRIR kl.12 á laugardagskvöldið. Samt ef
maður pælir í því er fátt eins gott og það, ahh...
Í
gær þegar ég fór í vinnuna var gjörsamlega glergljái á götunum, við
erum að tala um eins og einhver hafi misst risastóra eistneska
ljósakrónu á götuna!! Maður skautaði í vinnuna og innan skamms fór
að snjóa!! Og enginn smá snjór þetta, þetta var sannkallað
jólakortamyndaveður. En hér kemur pælingin: Í hádeginu þegar ég
labbaði í vinnuna var ég greinilega í ágætu stuði þar sem innan í
hausnum á mér glumdi hástöfum “jingle bells, jingle bells, jingle
all the way, trallalalralala”...við erum að tala um viðbjóðslegt
slabb á götunni og ógeðslega rigningu, akkúrat draumajólaveðrið!!
Ég spyr bara, er þetta í lagi????
Ég ákvað að drífa mig í íþróttahúsið áðan eftir langa hvíld
frá íþróttabölinu. “Já hann hefur skellt sér í fótbolta”, hugsa
kannski flestir, en neineineinei, ég fór í blak!!! Haha já það er
satt, ég ákvað að fara í þjóðaríþrótt Norðfirðinga eftir tveggja
vikna væl í Gísla um að mæta á æfingu. Mér fannst þetta bara nokkuð
gaman þó að ég sé náttúrulega miklu betri en allir hinir haha en
neinei þó ég segi sjálfur frá var ég nokkuð öflugur. Ég átti
allavega nokkrar svakalegar laumur og uppgjafirnar eru baneitraðar
!! Einhver til í að endurvekja blaklið í
karlaflokki...?
Uss þetta blogg var alltof langt, ég er hættur!!
Lifið heil
»
10.10.2006 22:55:45 / Atli
Þegar ég kom út í morgun fannst mér nú eitthvað skrýtið
vera á seyði, það var eitthvað skrýtinn litur á húsinu... þegar
betur var að gáð kom í ljós að húsið var þakið litlum Björk
Guðmundsdóttir (fiðrildum) og lágu þær í þúsundatali utan á
húsinu og sugu viðarvörn af miklum ákafa af timbrinu... ég veit
ekkert hvort að fiðrildi geri það og svo taldi ég nú bara fimm
kvikindi, en mig langaði bara að lífga aðeins uppá
þetta...
En gott kvöld!! Ástæðan fyrir þessari frásögn hérna að ofan
var nú bara að mig langaði aðeins að lífga uppá þessa litlausu síðu
með smávegis ævintýralegri frásögn úr mínu lífi, enda vita menn að
mitt líf er með eindæmum ævintýraríkt..ehemm 
Ég veit ekki hvort allir hafi fengið svona póst frá Núinu, en
það á víst að vera aðalmálið í dag. Menn velja bara einhvern kassa
og svara svo spurningu og bingó!! Einn á móti fimm að menn vinni
einhvern svaka vinning eins og t.d. ferð fyrir tvo til Búdapest
fyrir tvo o.fl. Já það er þetta o.fl. sem er í aðalhlutverki og
EKKI Í FYRSTA SINN. Jújú, að sjálfsögðu skráði ég mig í þetta og
skráði einnig nokkra í leiðinni (Þetta á við um þig Petra!! Hehe
) og ekki leið á löngu þangað til vinningarnir tóku að streyma
inn!!! Hvað var þá í vinning.. jú, 2 fyrir 1 í einhverri
pínulítilli Videoleigu sem er úr alfaraleið í einhverju bakhúsi!!
Síðan þá hef ég tvívegis fengið vinning í þessu, og í bæði skiptin
var það 2 fyrir 1 á videoleigu, en aldrei sama leigan...talandi um
frábæra vinninga hérna 
Það er alveg merkilegt hvernig maðurinn hagar sér... ég veit
ekki hvernig það er almennt en mér finnst ekkert skemmtilegra en að
tala um vinnuna þegar ég er kominn heim eða í fríi. Ég veit ekki
hver er ástæðan fyrir þessu, en það getur ekki verið eðlilegt að
hugsa svona...Það gæti verið að ég kunni ekki að skilja vinnuna
almennilega eftir þar sem hún á heima, það gæti verið að mér
finnist ég vera að gera eitthvað gagn sem ég vil ólmur komast í,
eða þá að mér finnist einfaldlega svona gaman í vinnunni. Þetta er
pæling...held að þetta sé ekki eðlilegt en ég er ekki viss. Reyndar
finnst mér mjög gaman í vinnunni.. svona næstum alltaf.
Ég var að hugsa um að koma með hugleiðingu en ætli ég láti
hana ekki bíða betri tíma.
Lifið heil
P.S. mig langar svooooo í Snúning með Mars, þrist og hlaupi,
ARG!!!
»
08.10.2006 23:19:00 / Atli
Það er með eindæmum hvað
karlmenn geta verið agalausir og án alls metnaðar
stundum...eða bara alltaf. Ég get nú sagt ykkur ágætis sögu
af því. Í gærkvöldi stóð ég sjálfan mig að því, TVÍVEGIS, að
gera eitthvað sem ég á alls ekki að gera. Um kvöldmatarleytið
byrjaði ég að reyna að blekkja sjálfan mig á fullu, með
frösum eins og “ég hef verið svo duglegur alla vikuna” og
“það er nú laugardagur maður!!”, og að sjálfsögðu féll ég í
svaðið. Seinna um kvöldið greip löngunin mig aftur af enn
meiri krafti en áður. Í þetta skiptið tókst mér að hafa hemil
á mér í fyrstu tveimur köstunum en í þriðja kastinu réð ég
ekkert við mig, ég varð bara að fá mér kók!!! Menn hugsa
örugglega: Drengur maður, þú mátt alveg fá þér smá kók á
laugardegi!! En ég má það eiginlega ekki, ekki fyrir það að
ég fitni heldur af því að glerungurinn á tönnunum er í maski
og ég verð að drekka sem minnst af súrum drykkjum. Ég gerði
þó eins gott úr þessu og ég gat og notaði rör við að drekka
þetta, þannig að ég fékk bara 100% kolsýru beint ofan í
streptókokkana í hálsinum, SWEEET!!! Burn baby
burn!!
En aðalástæðan fyrir því að ég
er að deila þessum tilgangslausu upplýsingum með ykkur er að
mér finnst það dálítið skondið hvað maður getur verið eins og
lítill smákrakki þegar maður gerir eitthvað sem maður má ekki
gera, ég held sveimér þá að litlu krakkarnir hafi meiri aga
heldur en karlmenn á fyrstu fullorðinsárunum...
Ég vil að The Police komi saman
aftur og spili á Íslandi!!! Er ekki einhver sem er með mér í
að láta þetta gerast?? Þyrftum reyndar örugglega að borga
Sting eitthvað fyrir að koma fram en það eru örugglega bara
smáaurar...
»
06.10.2006 22:35:59 / Atli
Þessi vika hefur verið ansi skrautleg þegar kemur að
heilbrigðismálum mínum, en það má segja að ég hafi verið nær
fastagestur á öllum helstu læknastofum Eskifjarðar og
Reyðarfjarðar í vikunni. Þetta byrjaði með því að ég lét loksins
verða af því eftir mikið nöldur, að hringja í vakthafandi lækni
á sunnudagskvöldið út af útbrotum og kláða sem ég hafði verið
með undanfarna daga. Jújú, að sjálfsögðu vildi hann skoða mig
UNDIR EINS (enda fær hann borgað fyrir það) en vissi eiginlega
ekkert hvað þetta væri, var nokkuð viss um að þetta væri vírus
en sagði þá að ekkert væri hægt að gera, sagði mér þó að tala
við sig aftur eftir nokkra daga ef þetta væri ekki farið að
lagast. Sjúkrasagan mín hélt áfram á þriðjudaginn þegar ég fór
til augnlæknis sem dæmdi mig blindan (svona næstum, allavega
dáldið verri sjón en síðast) en við ræddum einnig um þann
möguleika að ég gæti notað linsur þannig að prepare ladies,
Atlzenegger is on his way!! Allavega, ég ákvað að tala við
hinn lækninn út af þessum útbrotum en hann leit á mig í ca. 10
sekúndur og sagði svo: Þú ert með Pityriasis Rosea. Ég var
náttúrulega bara “Aaaaaaa”, enda vita allir hvaða sjúkdómur það
er Þetta er víst alveg meinlaust, en gengur yfir á 4-6
VIKUM!! Halló!!! Hvað er í gangi...
En já svo var lokahnykkurinn á þessum
hrakförum mínum ferð til læknisins í gær, en þá dæmdi hann að ég
væri með streptókokka í þriðja eða fjórða sinn á ævinni (ég þarf að
fara að fá svona afsláttarkort af pensillíni). Þannig að ég hef
bara legið heima síðustu daga og stefni á að taka því rólega um
helgina svo ég komist örugglega í sæluna eftir helgi, vúhú!!
Mig langar aðeins að tala um RÚV, í örugglega fjórða skipti
eða eitthvað. Ég er mikill Bylgjumaður og hef verið það lengi, en
Bylgjumenn hafa oft sætt miklu aðkasti úti í samfélaginu og ég vil
bara segja að við erum líka fólk og höfum tilfinningar!! En já,
Rásar 2 menn segja oft að Bylgjan sé bara síbylja sem spili alltaf
sömu lögin dag eftir dag, oft á dag. Ég get svosem alveg tekið
undir það, en hún spilar bara einfaldlega það sem fólk vill heyra.
Í sömu andrá tala menn um að hvergi annarsstaðar en á Rás 2 geti
ungir og efnilegir tónlistarmenn komið sér á framfæri. Í þessari
viku, frá síðasta föstudegi, hef ég beðið hvorki meira né minna en
sex sinnum um að Out Loud séu spilaðir í Popplandi en aldrei er það
gert. Rás 2 ættu nú alveg eins að horfa í sinn eigin barm því að
mér finnst sömu lögin hafa vera spiluð út í eitt síðustu vikur,
eins og t.d. Snow Patrol, Baggalútur og Stebbi og Eyfi (hef ekkert
á móti þessum flytjendum, bara að vekja athygli á máli mínu).
Annars hef ég oft beðið um lag á Bylgjunni og það hefur alltaf
verið spilað fyrir mig...
Paparnir eru að spila á Eskifirði annað kvöld. Ég var svo
farinn að hlakka til að fara á almennilegt ball einusinni, en
neeeeeeeeii þá þarf ég að veikjast, ARG!! Ég neyðist bara til að
liggja heima í veikindunum og horfa á Stiklur Ómars Ragnarsson í
staðinn...
»
03.10.2006 22:53:56 / Atli
Hérna situr maður fyrir framan sjónvarpið í góðum fíling,
nýkominn úr sturtu og nýrakaður eins og fínn maður (reyndar ekki,
en maður má alltaf láta sig dreyma um að maður nenni að láta verða
af því). Hvað er þá betra en að gera sér dagamun, vafra um netið í
leit að dægradvöl og verða sér út um mikinn og góðan
fróðleik?
Hvernig væri það ef maður myndi alltaf tala og blogga svona? Ég
held það yrði frekar leiðinlegt til lengdar... á ég að prófa að
blogga svona í kvöld? Nii held ekki!!
Það er þriðjudagur í dag, sem þýðir að vikan er tæknilega séð
nýbyrjuð, en það er strax kominn helgi í mig með tilheyrandi leti
og deyfð í vinnunni. Þetta er farið að gerast alltaf fyrr og fyrr í
vikunni. Í síðustu viku var ég farinn að finna þetta á
miðvikudeginum, í næstu viku verður það sennilega mánudagur...
kannski fer þetta svo annan hring? Maður veit ekki.. Annars er nú
lítið að frétta. Ég skellti mér á fyrstu æfingu vetrarins hjá besta
(en jafnframt óheppnasta) liði Austurlands, Súlunni í
knattspyrnuhöllinni okkar frægu. Það er svosem ekki í frásögur
færandi að öðru leyti en því að ég var í marki allan tímann!! Ég
veit hvað menn hugsa: “En þú getur ekkert í marki!!! ” Ég er nú
ekki alveg sammála því, en aðalástæðan var sú að ég sé ekki rassgat
í fótbolta og er því alveg gagnslaus úti á vellinum. Í stuttu máli
sagt átti ég stórleik í markinu (reyndar mjög lítið að gera) og
varði t.d. eitt skot meistaralega, ég verð aldrei þreyttur á að
segja þessu sögu hehe Einhver úr hinu liðinu var kominn
nálægt markteignum og skaut
ekki-svo-föstu-en-allan-tímann-við-jörðina skoti sem stefndi beint
í bláhornið. Ég ákvað þá á sekúndubroti að elta boltann og skutlaði
mér niður leiftursnöggt og sló boltann út fyrir
völlinn = Stórglæsileg markværsla á heimsmælikvarða sem
sjálfur Marcus Hahnemann hefði verið stoltur af!!
Eins og menn hafa kannski tekið eftir er ég alltaf röflandi útí
RÚV á þessari síðu varðandi metnaðarleysi í íslenskri dagskrárgerð.
Það má segja að metnaðurinn hafi verið í hámarki hjá þeim í kvöld
en kannski ekki frumlegheitin: Stefnuræða forsætisráðherra og
umræður um hana! Það voru örugglega þúsundir manna sem sátu og
bölvuðu Ríkisútvarpinu í sand og ösku fyrir þessa tímaeyðslu en það
er alveg hægt að skemmta sér yfir þessu ef maður hefur nægt
ímyndunarafl og kannski örlitla geðveiki. Maður getur bara setið og
hugsað og ímyndað sér að maður sé að tala við og svara
manneskjunni. Ingibjörg Sólrún var t.d. að halda ræðu, en eins og
allir vita hef ég rosalegt álit á þeirri manneskju (hóst). En hún
var að segja að það yrði að skipta um ríkisstjórn í næstu
kosningum, en þá hugsaði ég: “Ég er fullkomlega sammála þér!!!...
en við erum örugglega ekki með sömu ríkisstjórnina í huga!!” Haha
hljómar eins og brandari í rússneskum gamanþætti um líf fólks í
bæjarblokkunum. ..nógu sorglegt er það allavega.
Ég ætla að hætta þessu rugli í bili Lifið heil
»
28.09.2006 22:13:16 / Atli
Haaaaaaaaaalló gott fólk!! Ég ákvað að setjast niður og
skrifta smávegis fyrir bloggþyrsta lesendur þessarar síðu. Ég
vek þó athygli á því að þetta blogg gæti orðið dálítið
samhengislaust þar sem ég er að horfa á sjónvarpið, því eins og
maðurinn sagði geta karlmenn ekki gert þrennt í einu, einungis
tvennt. Mér finnst það einnig þurfa að koma fram að ég er að
horfa á ALLIAS!! Af öllu í sjónvarpinu, hélt ég að þetta yrði
það síðasta sem ég myndi horfa á, en hérna sit ég og hef í
sannleika sagt bara nokkurn áhuga á þessu... life is weird isn’t
it??
En já allavega. Það er nú eitthvað lítið að frétta þar sem
lífið er nú með fábreyttasta móti hjá mér, vinna borða sofa.
Talandi um það, en móðir mín ákvað að bregða undir sig betri
fætinum (veit ekkert hvor er betri, held hún hafi ekki verið mikið
í boltanum) og skella sér til Reykjavíkur og þar af leiðandi skilja
okkur eftir eina með lyklaforráð. Þetta hefur það í för með sér að
ég þarf að gera ýmislegt núna sem ég er ekki vanur að gera dags
daglega, eins og að versla inn. Ég ákvað að vera flottur á því og
elda fyrir sjálfan mig áðan, en ég tek það fram að það geri ég ekki
oft!! Ég eiginlega skammast mín fyrir að vera svona ósjálfbjarga!!
En já í stuttu máli má segja að ég hafi farið á kostum við
eldavélina og komst alveg heill frá. Það er kannski algjör óþarfi
að láta fylgja með hvernig tókst til við matargerðina, en ég
borðaði þetta allavega og er nokkuð heill heilsu ennþá.
Ég held að það sé ekki hægt að blogga hérna án þess að skrifa
skemmtisögu úr vinnunni, sem ég hef þó enga trú á að mönnum finnist
skemmtileg (mér fannst það samt!!). En já, í gær og í fyrradag
ákvað ég að taka aðeins til á verkfæralagernum mínum (ég er farinn
að kalla þetta minn lagar, my precious!) og þegar upp var staðið
var allt í einu farið að sjást í gólfið sem ég hef ekki séð síðan
ég byrjaði að vinna þarna. En allavega, þá var ég farinn að hugsa
út hvernig ég ætti að monta mig af þessu og var alveg tilbúinn með
að kalla á strákana og segja: Hey, vissuði að gólfið er hvítt (haha
lame djók maður!!) og ákvað ég í einhverjum fíflagangi að sparka
léttilega í stafla af kössum á gólfinu, svona” GOTT Í ÞESSU” spark.
Ég vissi þegar ég sveiflaði fætinum að þetta væri dauðadæmt, enda
hrundi þetta allt í gólfið með ærandi hávaða, því að í þessum
kössum voru hundruðir af hillufestingum úr járni!! Glæsilega gert
Atli (Y).
Ég ætlaði að koma með hugleiðingu í þessu bloggi (svona eins
og í messunni) en ég er orðinn alltof þreyttur og ætla að fara að
sofa bráðum.
Ég bið að heilsa og vil vekja athygli á því að ef einhverjir
vilja hlusta á beinar lýsingar af stjörnuhimninum bendi ég þeim á
að stilla á Ríkisútvarp Rás 2 akkúrat núna (hvað var
þetta...?)
Lifið heil
»
18.09.2006 22:34:17 / Atli
Gott kvöld. Eru allir ekki nokkuð hressir bara svona í
byrjun vikunnar? Jújú, það er ekki annað hægt þar sem það er svo
FRÁBÆR SJÓNVARPSDAGSKRÁ alltaf á Ríkissjónvarpi allra
landsmanna. Á hvaða leið erum við eiginlega? Nú er nýjasta
útspilið hjá RÚV spjallþáttur með Jóni Ólafssyni á besta tíma á
laugardagskvöldum. Jújú fínt að hafa léttan spjallþátt en væri
þá ekki hægt að hafa einhvern annan við stjórnvölinn, t.d. Gísla
Martein (sry en ég bara dýrkaði þann þátt haha ), þar sem mér
finnst Jón Ólafs vera alveg útbrunninn þegar kemur að stjórnun
spjallþátta. Svo ekki sé minnst á Kastljós á sunnudagskvöldum...
guð minn almáttugur hvað þessi manneskja fer í taugarnar á mér!!
Það er enginn metnaður í íslenskri dagskrárgerð í dag. Þetta var
öðruvísi fyrst þegar Sjónvarpið var að hefja göngu sína þegar
skemmtilegir spjallþættir voru á dagskrá og sjónvarpsleikrit
framleidd. Ég efast svosem um að unga kynslóðin í dag hafi gaman
að svarthvítum sjónvarpsleikritum en samt...allavega metnaður í
þá daga 
En já að öllu nöldri slepptu. Það hefur nú lítið drifið á daga
mína síðan síðast þar sem ég geri mjög lítið annað en vinna og
sofna fyrir framan sjónvarpið á kvöldin. Í síðustu viku fékk ég þó
góðan vin í heimsókn, Mr.Kvef, sem gerði mikinn usla þann stutta
tíma sem hann kom, en sem betur fer hafði hann stutta viðdvöl. Haha
ég man hvernig maður fagnaði því oft að vera veikur þegar maður var
í grunnskóla af því maður þurfti ekki að fara í skólann!! Good
times good times...
Hér kemur góð saga úr lífi mínu hehe, en ég skellti mér til
tannlæknis í dag. Ég hljóma eins og þetta sé eitthvað sem maður
gerir þegar maður er í stuði, “ég skeeellti mér til tannlæknis”, en
það er víst ekki þannig heldur er maður boðaður í tíma og ótíma til
þess að láta gera við eitthvað, what’s the deal?? Sumir þjást af
mikilli tannlæknahræðslu en ég er ekki einn af þeim, nema ef vera
skyldi af hræðslu við reikninginn eftir heimsóknina (ha ha þessi
var sterkur!!), þannig að ég verð að finna mér eitthvað annað til
dundurs heldur en að svitna í stólnum. Ég reyndi að finna eitthvað
í loftinu, ég taldi t.d. kapalfestingarnar í loftinu ( þær eru 8 )
en það var ekki mikið að gerast þar. Mér finnst að tannlæknar ættu
gera eitthvað í þessu. Þeir gætu málað loftin með litríkum myndum,
útbúið svona græju þannig að maður gæti lesið í stólnum eða hengt
sjónvarp fyrir ofan stólinn. Þetta myndi bæði leysa vanda þeirra
sem leiðast hjá tannlæknum og þeirra sem þjást af tannlæknahræðslu,
en vegna þessa myndi hugur þeirra dreifast frá tannlækninum og
hræðsla þeirra minnka. Er þetta ekki alveg frábær
hugmynd??
Mér lýst vel á Stöð 2, þeir eru byrjaðir að endursýna
Fóstbræðraþættina frá upphafi á laugardögum. Það væri nú gaman að
horfa á þá...EF maður væri með Stöð 2.... og EF maður kynni ekki
alla þættina utan að
-
Við verðum að kaupa mjólk
- Já nýmjólk
- Nei léttmjólk
- Nýmjólk eða enga mjólk!!
Ahh klassi..
You know the words...
Atli Már
»
11.09.2006 22:56:30 / Atli
Haaaaaalló!! Af hverju nennir maður ekki að
blogga þegar maður hefur VIRKILEGA frá einhverju að segja? Núna
sit ég og finn mig tilneyddan til að blogga eitthvað
hundleiðinlegt þó að ég nenni því alls ekki. Úff þetta er erfitt
líf!!
En kjellinn ákvað bara að skella sér til Sandgerðis á
laugardaginn eins og glöggir menn tóku eftir, enda láta
stuðningsmenn nr.eitt og tvö ekki svona mikilvægan leik framhjá sér
fara. Þetta var í fyrsta sinn (að ég held) sem ég flýg til
Reykjavíkur og aftur heim sama dag án þess að stoppa í borginni, og
ég er ekki frá því að það hafi bara haft góð áhrif á mann að vera
ekki að flækjast í Reykjavík í stressinu þar. En já my first time
to Sandgerði, þessi bær leit alveg ágætlega út. Fyrir utan það að
vera rokrassgat á enda veraldar var þetta vinalegur bær en gæti
maður hugsað sér að búa þarna? Hmm...NEI. En já Fjarðabyggð vann
titillinn að sjálfsögðu og var haldið heim með bikarinn í
flugvélinni og ég held að flugfreyjan (og farþegarnir) hafi verið
orðin dáldið pirruð á látunum í okkur sem voru ekki lítil!! Svo
ákváðum við að labba allir saman inní flugstöðina með bikarinn og
syngja til að nudda Njarðvíkingum upp úr þessu, en neinei þá voru
þeir bara farnir!! Þeir hafa örugglega leigt vél sérstaklega til að
þurfa ekki að mæta okkur. Um kvöldið var svo skundað á lokahóf sem
tókst bara nokkuð vel og svo á ball sem var mjög fámennt en
góðmennt.
En að aðaldeginum, gærdeginum. Ég vaknaði eldhress að vanda löngu
upp úr hádegi og sá að það var brakandi blíða úti. Þá hugsaði ég
með mér: Hvernig væri tilvalið að eyða deginum? Í BERJAMÓ AÐ
SJÁLFSÖGÐU!! Þannig að partýið frá því kvöldið áður hélt bara áfram
útí móa, þó að þetta séu nú engir móar lengur, maður þurfti bara að
fara aðeins út fyrir nýju göturnar en þegar maður var lítill tók
heilan dag að labba þarna upp í fjall og fara í gegnum hávaxna
frumskóginn með sínum hættulegu lækjum. Að sjálfsögðu greip ég
myndavélina með mér og tók nokkrar (mis)fagrar náttúrulífsmyndir af
Reyðarfirði og ég skelli nokkrum hérna inn

Fögur er hlíðin...
B-E-A-UTY!!!

Þessar kindur vildu vera með í
partýinu... You mess with me, you mess with the rest of
us

Reyðarfjörður - Bær framkvæmdanna.
Í bakgrunni sést stolt Reyðarfjarðar, knattspyrnuhöllin
Fingurbjörg
Ég sá nokkur nýbyggð hús í ferðinni
og ákvað að skella einni inn til að minna á að húsbyggingar
Íslendinga verða sífellt...fjölbreyttari, segi ekki
meir!

Dæmi nú hver fyrir sig... maður
veit ekki...
Lifið heil
mörgæsir!!
»
07.09.2006 00:17:53 / Atli
- Nú ætla ég að
tala hreint út!! Haldið að ég sé algjört fífl eða
hvað?
- Ja við viljum síður særa þig
þannig að ætli það sé ekki best að við sleppum því að svara þessari
spurningu...
Hver man ekki eftir Nýju lífi?? Sniiiilld 
En
annars ætla ég að reyna að tala hreint út í þetta skiptið hehe.
Ekki taka neitt inn á ykkur sem stendur hérna vegna þess að það ber
ekki að taka því alvarlega 
Þessi dagur hefur verið nokkuð ágætur bara. Ég gerði tilraun
til að vakna í nótt og kjósa Magna en það var verk sem var of
viðamikið til þess að það væri framkvæmanlegt. Í staðinn ákvað ég
að sofna mjööög fast og koma of seint í vinnuna jebb mér tókst
ekki að ná markmiðinu að mæta á réttum tíma í vinnuna. Eftir vinnu
hljóp ég heim til að ná landsleiknum sem ég hafði beðið spenntur
eftir í marga daga en ég varð vægast sagt fyrir vonbrigðum. Ok, ég
veit að Íslendingar gera sér alltaf alltof miklar væntingar til
landsliðsins og verða svo brjálaðir þegar þeir tapa fyrir miklu
betra liði, en í dag varð ég ekki ánægður vegna þess að mér fannst
þeir ekki gefa sig 100% í leikinn og í fyrri hálfleik skulfu þeir
gjörsamlega á beinunum af hræðslu við Danina. Það má líka segja að
í kvöld hafi ég skammast mín fyrir danskan uppruna minn vegna þess
að í það kom greinilega í ljós í þessum leik að Danir eru ALGJÖRAR
KÉLLINGAR í návígum. Það mátti ekki koma nær þeim en einn metra án
þess að þeir flygju út af vellinum, Spánverjar aumingjar hvað? Það
hefur reyndar runnið dáldið reiðin af mér síðan í kvöld en ég
viðurkenni það alveg að ég verð oft alveg spinnegal yfir boltanum,
það er ekkert að því 
Fyrst ég er byrjaður að nöldra á annað borð verð ég að lýsa
yfir hneykslun minni á skipulaginu hjá RÚV þegar þeir eru að
sjónvarpa þessum landsleikjum. Það liggur við að það fari meiri
tími í að sýna myndskot af þjálfurunum heldur en leiknum sjálfur,
við erum ekki að borga fyrir þetta!!! Þetta hefur þó skánað mikið
síðan Ásgeir og Logi voru með liðið, en þá var eins og RÚV hefði
fengið borgað fyrir að auglýsa tyggjóið sem Ásgeir var með.
En
að öðru, allt öðru (kaldhæðni, þetta snýst allt um fótbolta!!) Núna
er stefnan sett suður um helgina. Til hvers? Jú, stuðningsmenn nr.1
þurfa að fylgja 2.deildar bikarnum heim í Fjarðabyggð þar sem hann
á réttilega heima. Hmm sumir myndu telja það sorglegt að fara spes
ferð suður til að horfa á einn fótboltaleik en maður lifir víst
bara einu sinni og það er eins gott að nota það í flipp. Svo er
maður nú ungur maður sem þénar á tá og fingri og þarf ekkert að
borga í leigu, meðlög, rekstur á bíl o.s.frv. þannig að maður
bókstaflega verður að reyna að losa sig við alla þessa peninga sem
hlaðast upp hjá manni . Það er eins gott að þeir vinni þennan
leik!!!
Lifið heil
»
03.09.2006 23:31:06 / Atli
Af hverju endar maður alltaf einn
inni í stofu á sunnudagskvöldum, og klukkan er ekki orðin meira
en 23? Það er alveg frábært hvernig sjónvarpstöðvunum tekst að
hrekja fólk inn í rúm löngu fyrir miðnætti á sunnudagskvöldum,
og stundum mætti halda að þær hafi ólöglegt samráð um hver fái
að sýna lélegasta sjónvarpsefnið. Ég hef oft sagt að sunnudagar
séu tilgangslausir dagar og eru þeir fyrir flestum annaðhvort
þynnkudagur eða kirkjudagur. Er þá ekki bara tilvalið að hafa
sunnudagana sjónvarpslausa? Ég held að það myndu fáir sakna
þess, eða ekki ég allavega.
En já gott kvöld og afsakið þetta
nöldur strax í byrjun Nú er þessi helgi að baki (sem ég
skil ekki hvernig gat liðið svona fljótt!) og ný vinnuvika að
hefjast, sem verður reyndar stutt (styttri?) þar sem ég er í fríi á
laugardaginn VÚHÚ!! Helgin var bara alveg ágæt. Á
föstudagskvöldið ákvað ég að drífa mig út og var í þessu líka
þvílíka stuði, nú átti sko aldeilis að taka á því!! Ég beilaði á
busaballinu en ég er nokkuð sáttur við það þar sem ég hef ekki
heyrt góðar sögur af því. En já, í stuttu máli má segja að ég hafi
endað í sófanum heima eftir að hafa keypt mér nammi og horfði á
DVD. Talandi um að vera partýdýr nr.1 Ég skellti mér eldhress í
vinnu daginn eftir, dandalaðist eitthvað allan daginn og kíkti svo
aðeins á Café Kurva um kvöldið en þar var fjölmennt en illmennt að
vanda. Sunnudagurinn er svo ekki í frásögum færandi vegna almenns
sunnudagsþunglyndis. Talandi um þetta, ætli ég sé nokkuð einn um
það að þola ekki sunnudaga? Ég held að þetta væri tilvalið
rannsóknarefni fyrir félags- og sálfræðinga og ég legg til að þetta
verði kallað Atli-Syndrome þegar þetta verður fullrannsakað, annað
væri bara ekki sanngjarnt.
Jæja ég nenni ekki liggja lengur
hérna, en að lokum ætla ég þó að koma með nokkra punkta:
-
Ég hef ekki ennþá komist í berjamó
síðan berjapælingarnar komu fram. Stofnun Félags íslenskra
berjaáhugamanna er þó í fullum gangi og tek ég enn á móti
skráningum. Ég SKAL komast í berjamó fyrir
veturinn!!
-
Ég hef sett mér nýtt markmið
varðandi næstu viku en það er að mæta á réttum tíma í
vinnuna. Þeir sem þekkja mig vita að þetta er næstum því
óhugsanlegt en ég ætla allavega að gera heiðarlega tilraun
til þess og læt ykkur vita af gangi mála síðar í
vikunni.
-
Þetta hljómar kannski asnalega, en ég
er dáldið farinn að sakna VA eftir að skólinn byrjaði. Ég á
aldrei eftir að ganga ganginn, aldrei eftir að sitja og bíða
eftir tíma, aldrei eftir að skila verkefni alltof seint...
Ég óska hér með eftir sögum úr VA til að halda mér gangandi í
vetur 
-
Þetta blogg er orðið alltof
væmið og fyrir löngu orðið leiðinlegt

Lifið heil!!
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|
|